Næsta ferð 5. september: Kambur við Flateyjardal

Kambur við Flateyjardal 1160 m. skorskorskor  

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Árni Sveinn Sigurðsson.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið út á Flateyjardal á móts við Véskvíar og fólk ferjað á jeppa yfir ána ef færð leyfir, annars þarf að vaða ána. Þá er gengið í stefnu á fjallshrygginn og honum fylgt upp á Kambinn þar sem frábært útsýni er yfir dalinn og nærliggjandi fjalllendi. Vegalengd 5 km hvor leið. Gönguhækkun 1000 m. Munið að skrá ykkur hér
Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og tveggja metra fjarlægð, gæta hreinlætis og hafa handspritt meðferðis.