Næsta ferð: Jökulsárgljúfur – haustlitaferð

Minnum á næstu ferð:

Jökulsárgljúfur – haustlitaferð skor skor skor

15. september. Brottför kl. 7 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Farastjóri: Örn Þór Emilsson. Verð: 11.500/10.500. Innifalið: Fararstjórn og akstur.
Farið er með rútu í Hólmatungur í Jökulsárgljúfrum. Síðan er gengið niður með gljúfrum Jökulsár á Fjöllum en hún hefur mótað það fjölbreytta landslag sem við göngum um í miklum jökulflóðum. Gengið er um Hólmatungur, Vesturdal, Hljóðakletta, farið um Kvíar og komið að Klöppunum þar sem sést yfir Ásbyrgi. Falleg haustlitaferð í stórbrotnu og smáfríðu landslagi sem varla á sinn líka hér á landi. Vegalengd um 23 km. Þátttakendur athugið að gott er að hafa handklæði meðferðis og vaðskó ef vill.

Munið að skrá ykkur.