Næsta ferð: Lúxusgönguferð í Mývatnssveit

Lúxusgönguferð í Mývatnssveit

Laugardaginn 21. október er fyrirhuguð gönguferð í Mývatnssveit ásamt gistingu á nýja Fosshótelinu þar í sveitinni.

Farið verður á einkabílum frá skrifstofu FFA við Strandgötu kl. 09:00. Boðið verður uppá ca. 3 tíma létta gönguferð og að henni lokinni skrá menn sig inn á hótelið.

Þriggja rétta kvöldverður fyrir tvo (bleikja í forrétt, lamb í aðalrétt og súkkúlaðikaka í eftirrétt+kaffi) ásamt morgunverði fyrir tvo. Tilboðsverð samtals fyrir tvo: 25.500 kr.

Tilboðsverð fyrir einstaklingsherbergi ásamt kvöldverði og morgunmat: 19.500 kr.

Á hótelinu er sauna (opið kl. 16-22) sem er opið öllum gestum.

Happy hour er kl. 17-18.

 

Hvetjum við fólk til að taka þátt og að sjálfsögðu er ekkert skilyrði að fara í gönguna. Þeir sem vilja geta haft það gott á hótelinu á meðan eða gert hvað sem þeim sýnist.