Næsta ferð: Reistarárskarð - Flár

Skíðaferð skidi skidi Myndir

27. maí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.

Ferðin hefst við Freyjulund við Reistará. Stigið á skíðin í skarðinu og sveigt upp á Flár, hábungu fjallsins. Gengið suður eftir fjallinu eins og aðstæður leyfa og til baka norður í skarðið. 
Vegalengd 20 km. Hækkun 950m. 
Göngutími áætlaður 6,5 – 7 klst.

Æskilegt er að hafa bakpoka sem hægt er að festa skíðin á þegar gengið er upp í skarðið þar til komið er á snjó.

 

Við minnum á skráningu á ffa@ffa.is og hvetjum ykkur til að fylgjast með á facebook