Nú getur þú styrkt FFA og fengið afslátt hjá Flügger í leiðinni

Nú getur þú styrkt Ferðafélag Akureyrar og fengið afslátt hjá Flügger í leiðinni.

Svona virkar þetta:

Félagsmenn í FFA og aðrir velunnarar félagsins kaupa í gegnum staðgreiðslureikning þess og fá að minnsta kosti 20% afslátt af hilluverði í næstu verslun Flügger, Njarðarnesi 1. Afsláttur gildir af öllum Flügger vörum.

Flügger greiðir félaginu árlega styrktargreiðslu sem er að minnsta kosti 5% af veltu staðgreiðslureikningsins yfir almanaksárið.