Olíuferð í Dreka

Almannavarnir hafa leigt Nýja-Dreka í vetur og fram á vor af FFA og olíu til kyndingar skal FFA skaffa.  Lögreglumenn sem hafa nú vetursetu í Dreka þurfa að hafa yl í húsi og þar var að verða olíulaust. Um liðna helgi var gerður út leiðangur með olíu í Dreka. Farið var með 1000L í kálfi sem eiga að endast út maí og þar sem verkefnið var í stærri kantinum og vitað að færið var þungt á köflum var leitað til Súlna með það að leggja til bíla. Veður var hagstætt og allt gekk að óskum og myndir tala sýnu máli á myndssíðu.