Öskjuvegur

Brottför kl. 17 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson. Verð: 68.000/59.000.Innifalið: Akstur, flutningur, gisting og fararstjórn.
Skráningargjald kr. 10.000 greiðist við bókun. Lágmarksfjöldi: 10.
Gist í skálum og gengið með lágmarksbúnað og svefnpoka, ekið er með farangur á milli skála.
1.d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla, með viðkomu í Herðubreiðarlindum. 
2.d. Gengið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju og ef til vill farið í sund í Víti. Hópurinn sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.
3.d. Ekið í Öskjuop, gengið yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli. 14 km.
4.d. Gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna. 20-22 km.
5.d. Gömlum jeppaslóða fylgt niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. 15-16 km. Ekið í Mývatnssveit um Engidal og Stöng. Farið í Jarðböðin í Mývatnssveit. Ekið til Akureyrar.