Ósóttar árbækur og félagsskírteini 2020

Félagar í FFA athugið, þeir sem hafa greitt árgjald vegna 2020 og eru búsettir á Akureyri og nágrenni eru vinsamlegast hvattir til að sækja árbókina, félagsskírteini og tímaritið Ferðir á skrifstofu félagsins sem er opin alla virka daga frá kl. 14 til 17. Einnig er hægt að koma í hádeginu ef það hentar betur. Þeir sem ekki eiga heimabanka og vilja greiða á skrifstofunni eru líka velkomnir.