Reistarárskarð – Flár skíðaferð

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Grétar Grímsson
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Ferðin hefst við Freyjulund við Reistará. Þegar komið er upp í skarðið er stigið á skíðin og sveigt til suðurs og upp á Flár, hábungu fjallsins, þar sem gott útsýni er yfir Þorvaldsdalinn og fjöllin vestan við. Gengið suður eftir fjallinu eins og aðstæður leyfa, síðan haldið til baka norður í skarðið. Vegalengd 18 km, gönguhækkun 950 m.