Reistarárskarð - Flár, Skíðaferð 1000m.

Laugardagur 28.maí 2016

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Vignir Víkingsson. Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ferðin hefst við Freyjulund við Reistará. Stigið á skíðin í skarðinu og sveigt upp á Flár, hábungu fjallsins. Gengið suður eftir fjallinu eins og aðstæður leyfa og til baka norður í skarðið. 20 km. Hækkun 950m.