Reistarárskarð–Flár. 1000m. Skíðaferð

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri: Hildur Stefánsdóttir.
Verð: 2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ferðin hefst við Freyjulund við Reistará. Þegar komið er upp í skarðið er stigið á skíðin og sveigt til suðurs og upp á Flár, hábungu fjallsins, þar sem gott útsýni er yfir Þorvaldsdalinn og fjöllin vestan við. Gengið suður eftir fjallinu eins og aðstæður leyfa, síðan haldið til baka norður í skarðið.
Vegalengd alls um 20 km.