Rimar í Svarfaðardal

28. júlí. Rimar í Svarfaðardal, 1295 m. (3 skór)
28. júlí. Rimar í Svarfaðardal, 1295 m. (3 skór)
Ekið að eyðibýlinu Kleif í Þorvaldsdal að vestanverðu. Gengið suður dalinn framhjá eyðibýlunum Grund og Kúgili, sveigt upp í Þverárdalinn og upp á Rimar. Syðst á flötum Rimunum er útsýnið stórfenglegt til allra átta. Gengið er norður Rimarnar og niður í Hofsdal og komið niður að Hofi í Svarfaðardal þar sem ferðin endar.
Fararstjóri: Bjarni E. Guðleifsson
Verð: Kr. 3.000/3.800
Brottför kl. 9.00