11. júlí: Rútuferð í Húnavatnssýslur -sögu- og menningarferð

Rútuferð í Húnavatnssýslur. Sögu- og menningarferð  Nýtt

Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Bragi Guðmundsson
Verð: 16.000/14.500. Innifalið: Fararstjórn, rúta og aðgangur að Þingeyrakirkju. Þessa ferð þarf að greiða tveimur dögum áður.
Ekið í Húnavatnssýslur um Blöndubrú fremri, stansað á Sveinsstöðum. Hringferð um Vatnsdal og þaðan að Kolugili. Hádegisverður í Víðigerði (ekki innfalinn). Haldið til baka með viðkomu á Þrístöpum og Þingeyrum. Ekið um Þverárfjall, stansað á Sauðárkróki. Haldið áfram um Hegranes, Viðvíkursveit og Blönduhlíð til Akureyrar. Í ferðinni verður stoppað við Þrístapa en þar var síðasta aftakan á Íslandi árið 1830.

Skráning