Sesseljubúð – Hallgrímur – Háls. Frestað!!

Frestað þar til síðar í sumar.
Fararstjóri: Stefán Sigurðsson.
Verð: 2.500/2.000 Innifalið: Fararstjórn.
Ferðin hefst á Öxnadalsheiði þar sem sæluhúsið Sesseljubúð stóð. Gengið upp með Grjótá og fylgt Eystri Grjótá að Gilsárskarði. Síðan upp á Varmavatnshólafjall, þaðan er frábært útsýni. Þá er farið niður Vatnsdalinn meðfram Hraunsvatni og komið niður að bænum Hálsi.
Vegalengd:17 km. Hækkun:  690 m.