Skálaverðir - sumarstörf

Ferðafélag Akureyrar leitar að skálavörðum til starfa í skálum félagsins í Herðubreiðarlindum og Drekagili sumarið 2023. Við leitum einnig eftir fólki í veitingasölu í nýju húsi FFA við Drekagil.

Tímabil sem um ræðir er frá miðjum júní og fram í september. Leitað er að fólki sem getur unnið stærstan hluta tímabilsins en einnig er möguleiki að ráða í styttri tíma.

Starfið felst meðal annars í móttöku gesta, þrifum og samskiptum við ferðaþjónustuaðila og fleiri. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir ríkri þjónustulund, hafi góða tungumálakunnáttu og sé handlaginn og greiðvikinn.

Nánari upplýsingar um starfið veita þau Fjóla Kristín Helgadóttir, netfang fjola.k.helgadottir@gmail.com og Hilmar Antonsson í síma 862 3262.

Umsóknir skal senda á ffa@ffa.is fyrir 31. janúar, þangað er einnig hægt að senda fyrirspurnir.