Skíðaferð á Fláa

17. maí. Reistarárskarð - Flár. Skíðaferð 2 skór
Ekið er á einkabílum að Freyjulundi við Reistará og gengið þaðan upp norðan ár. Þegar komið er upp í skarðið er stigið á skíðin og sveigt til suðurs og upp á Flár, hábungu fjallsins (1000 m.), þar sem góð útsýn er yfir Þorvaldsdalinn og fjöllin vestan við. Gengið er áfram suður eftir fjallinu uns haldið er til baka.

Fararstjóri: Grétar Grímsson.
Verð: Frítt / kr. 1.000
Brottför kl. 9.00

Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins
og föstudaginn 16. maí milli kl. 17.30 -19.00
eða í tölvupósti ffa@ffa.is

Smellið hér til að sjá myndir frá ferð sem farin var í fyrra.


Ferðanefnd FFA