- Skrifstofan
 - Félagið
 - Ferðir og viðburðir
 - Hreyfiverkefni
 - Skálar
 - Myndir
 
 1. - 2. ágúst. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
 Fararstjóri: Karl Stefánsson
 Verð: 9.000/7.000. Innifalið: Fararstjórn, gisting.
 Ekið upp í Skíðastaði, fólk og farangur skilið eftir meðan bílar eru  ferjaðir á bílastæðið á Glerárdal. Gengið sem leið liggur til suðurs frá  Skíðastöðum ofan við vatnsbólin á Glerárdal. Lækkun niður á götu er  liggur inn Glerárdal vestanverðan inn að Lambá. Gengið upp gilið sunnan  Lambár ca. miðja vegu inn Lambárdalinn og til suðurs upp að  Tröllaspegli. Gengið er frá Tröllaspegli suður undir Tröllafjall og  niður að Glerá. Farið er yfir Glerána og í Lamba þar sem gist er.  Heimferð þann 2. ágúst.