Stórkostleg gönguleið og frábært útivistarsvæði

28. – 30. mars. Eilífsvötn – Þeistareykir – Húsavík. Skíðaferð 3 skórEkið að Klaustri á Mývatnsöræfum austan Námaskarðs. Þaðan gengið norður að Eilífsvötnum og gist í Hlíðarhaga. Gengið daginn eftir að Þeistareykjum og gist þar. Á sunnudag áfram til Húsavíkur um Reykjaheiði. Þetta er stórkostleg gönguleið og frábært útivistarsvæði, sem svíkur engan.

Fararstjóri: Frímann Guðmundsson.
Verð: kr. 6.900 / kr. 7.900
Innifalið: Fararstjórn, gisting, akstur.
Brottför kl. 13.00

ATH! Brottfarardag og brottfarartími! Föstudaginn 28. mars kl. 13.00

Smellið hér til að sjá myndir úr ferð sem farin var í mars 2006 og ferðasöguna er hægt að lesa hér:

Skráning og nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins
fimmtudaginn 27. mars milli kl. 17.30 og  19.00 eða í
tölvupósti ffa@ffa.is

Ferðanefnd   FFA