Sumarlok

Þá eru síðustu ferðir sumarsins á enda og ferðadagskráin tæmd að sinni.

Þetta er búið að vera ágætis ferðasumar, þó veðrið hafi nú stundum gert okkur lífið leitt. Flestar ferðir sem voru á dagskrá hafa þó verið farnar og fín mæting í þær. Þökkum við öllum þeim fjölmörgu sem hafa ferðast með okkur í sumar fyrir þátttökuna og skemmtilegt sumar. Á haustdögum taka kynningarkvöld og myndasýningar við og svo skíðaferðir eftir áramót. Það sem verður á döfinni hverju sinni verður auglýst sérstaklega þegar þar að kemur.

Skrifstofan lokar nú í enda ágúst en verður áfram opin á föstudögum fyrir ferðir. Símsvari gefur upplýsingar um opnunartíma og tengilið sem hægt er að ná til í síma.