Þingmannavegur, afmælisferð

skor skor
24. júlí. Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23. 
Fararstjóri: Helga Guðnadóttir. Verð: 2.500/2.000

Innifalið: Fararsjórn, rúta, og grillmatur að lokinni göngu fyrir gönguhópinn í boði Ferðafélags Akureyrar vegna áttatíu ára afmælis félagsins.

Genginn verður svokallaður Þingmannavegur yfir Vaðlaheiði frá þingstaðnum í Eyjafjarðarsveit að Hróarsstöðum í Fnjóskadal. Á leiðinni er gengið yfir afar sérstaka hleðslu yfir gil.  Vegalengd 10 km.  Hækkun 660 m. Að lokinni göngu býður Ferðafélag Akureyrar gönguhópnum í grillmat í Fnjóskadalnum.