Þorraferð í Fjallaborg. Skíðaferð

Brottför kl. 10á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Verð:  5.500/5.000. Innifalið: Gisting og fararstjórn.
Ekið á einkabílum austur eftir þjóðvegi 1 á móts við Skógarmannafjöll. Þaðan er gengið á skíðum suður að skálanum Fjallaborg við Rauðuborgir (8,5 km) þar sem snæddur verður þjóðlegur þorramatur um kvöldið að hætti skógarmannaí friðsæld öræfanna. Daginn eftir er gengið til baka í bílana. Hámarksfjöldi 10 manns.