Þorraferð í Lamba. Skíðaferð

Brottför kl. 11 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson. Verð: 7.000/5.000. Innifalið: Fararstjórn og gisting.
Ekið upp í Glerárdal að Sigurðargili, gengið þaðan á skíðum í Lamba, nýjan skála FFA, þar sem snæddur verður þjóðlegur þorramatur um kvöldið undir vernd Trölla Glerárdals. Haldið heimleiðis næsta dag. 11 km hvora leið. Hækkun 540 m.