Tökum skrefið - sunnudagsganga FFA þ. 26.05.19

Við vestustu brúna yfir Eyjafjarðará snerum við til baka.
Við vestustu brúna yfir Eyjafjarðará snerum við til baka.

Við fórum 30 saman í göngu frá bílastæðinu neðan Kaupangs í Eyjafjarðarsveit vestur yfir gömlu brýrnar á Eyjafjarðará. Veðrið lék við okkur og fuglar og nýútsprungin blóm voru hvarvetna. Eftir gönguna bauð FFA upp á kaffi í Strandgötu 23.