Tvær ferðir 01.03.2014

Miðhálsstaðarháls. Gönguferð skorskorFjall(fjall mánaðarins) 
22. febrúar. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri:  Karl Stefánsson
Verð: kr. 2.000/1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið er frá Miðhálsstaðarskógi, suður og upp á Staðartunguháls. Þaðan niður sömu leið. Leiðin er mjög auðfær. Vegalengd samtals 8 km. Gönguhækkun 450 m. Göngubúnaður miðist við færi og aðstæður.

Dalvík - Reykir. Skíðaferð skidiskidi
1. mars. Brottför kl. 9 á hópferðabíl.
Fararstjóri: Grétar Grímsson
Verð: kr. 6.000/5.500.  Innifalið: Fararstjórn, akstur.
Reykjaheiði var fjölfarinn fjallvegur milli Svarfaðardals og Ólafsfjarðar. Ferðin hefst við skíðalyftuna á Dalvík og genginn Böggvisstaðadalur þar til komið er í Mosa, skála Ferðafélags Svarfdæla.
Þaðan liggur leiðin upp bratta skarðsbrekkuna í Heiðarskarð 850 m og síðan niður Heiðardal að Reykjum.
Vegalengd 16 km.