Umgengni ferðamanna í fjallaskálum fer versnandi

Fréttatilkynning frá nokkrum Ferða- og útivistarfélögum

Umgengni ferðamanna  í fjallaskálum fer versnandi

Umgengni ferðamanna í fjallaskálum hefur farið versnandi undanfarin misseri. Stöðugt færist í vöxt að dyrum og gluggum sé ekki lokað þegar hópar yfirgefa skála og  hefur það leitt til stórskemmda þegar snjóar inn.  Almennri umgengni og hreinlæti ferðamanna í fjallaskálum fer einnig aftur. Góður ferðamaður leggur metnað sinn í að skilja við húsnæði hreint, gólf þvegin sem og borð og bekki. Hann skilur ekki eftir sorp eða óuppþvegin matarílát og afganga.  Áfengisneysla í fjallaskálum fer stundum úr böndum en ætti ekki að þekkjast á fjöllum eða að vera tilgangur fjallaferða.  Í einstaka tilvikum hefur það leitt til þess að ferðamenn ganga jafnvel örna sinna innandyra í anddyri fjallaskála eða í nágrenni þeirra.

Dæmi eru um að hluta af búnaði eða innréttingum og lausamunum hafi verið stolið úr fjallaskálum og hafa t.d. horfið kamínur úr tveimur skálum nálægt Langjökli síðustu vetur. Varla þarf að taka fram að hegðun örfárra setur auðveldlega blett á stóran hóp ferðamanna sem flestir fara til fjalla til að njóta lífsins og þeirrar fegurðar sem íslensk náttúra býr yfir.

Þau félög sem skrifa undir þessa yfirlýsingu vilja höfða til allra ferðamanna um að taka höndum saman og bæta umgengni og ferðahegðun.  Við viljum biðja þá sem verða vitni að slæmri hegðun og sóðaskap eða lögbrotum og hættulegu athæfi á borð við akstur undir áhrifum áfengis að reyna eftir megni að veita ferðamönnum aðhald með ábendingum og vísa afbrotum til lögreglu. Myndir og skráning númera ökutækja geta veitt aðhald á sama hátt og þögn og afskiptaleysi ýtir undir slæma hegðun og heimilar hana óbeint.

Enginn ferðamaður vill láta einstaklinga án dómgreindar varpa skugga á allan hópinn. Umgengni sýnir innri mann og framferði manna þegar þeir halda að engin vitni séu til staðar og öll siðmenning víðsfjarri talar sínu máli um innræti þeirra. Tökum höndum saman og bætum ástandið.

Ferðafélag Íslands
Ferðafélag Akureyrar
Ferðafélag Fljótsdalshéraðs
Ferðafélag Húsavíkur
Ferðafélag A- Skaftfellinga
Ferðafélagið Útivist
Ferðaklúbburinn 4x4
Ferðaklúbburinn 4x4 Húsavík
Ferðaklúbburinn 4x4 Austurlandsdeild
Landssamband íslenskra vélsleðamanna
Gæsavatnafélagið

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Þorsteinsson, gsm 893 2858