Uppsalahnjúkur, 1100 m.

Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjórar: Stefán Sigurðsson og Ingimar Árnason. 
Verð: 2.500/2.000.  Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að Öngulstöðum og þaðan að sumarhúsinu Seli. Gengið er til suðurs upp brekkurnar að vörðunni nyrst á Öxlinni og  áfram inn eftir fjallinu um greiðfær holt og stefnt austanvert við hnjúkinn. Síðan upp norð-austur hrygg fjallsins  uns komið er á hnjúknn. Útsýni er hér mikið yfir héraðið.
Vegalengd 9 km, hækkun, 1000 m.