Uppsalahnjúkur. Fjall mánaðarins. Gönguferð

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Verð:  2.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er að Öngulsstöðum og að sumarhúsinu Seli. Gengið upp að vörðunni nyrst á Öxlinni og áfram inn eftir fjallinu. Síðan upp norð-austur hrygg fjallsins á hnjúkinn, 1100 m. 10 km alls. Hækkun 930 m.