Botni

Botni
Gistipláss
16 manns
Staðsetning
Hálendið
Gjaldskrá
4.000 / 6.000 kr
GPS staðsetning:
65° 16.171'N, 17° 4.078'W
Hæð yfir sjávarmáli
440
Aðgengi
Gangandi / Fjallahjól 4x4
Skálavörður
Nei

 BÓKA SKÁLANN

Staðsetning: Botni stendur um 650 m suð-suðaustan efstu upptaka Suðurár, byggður 1996. Þangað liggur fáfarin jeppaslóð frá Svartárkoti / Grænavatni um Dyngjufajalladal. Á svæðinu er mjög takmarkað símasamband. 

Lýsing á skála: Gistirými fyrir 16 manns í kojum, svefnpokapláss á dýnum. Kynding með gasofni og steinolíuvél, gashella og eldhúsáhöld. Vatn má fá úr vatnsaugum við tjarnir suðvestan skálans eða úr upptakalindum Suðurár. Kamar. Skálinn er öllum opinn en ætlast er til að göngufólk sitji fyrir um gistingu. Skálinn er ólæstur. Gestir þurfa að taka rusl með til byggða.

Gönguleiðir í umhverfi skálans: Gönguleið frá Dyngjufelli að skálanum (20-22 km) og þaðan um Suðurárbotna að Svartárkoti (15-16 km).

 

Bóka skálann

Aðstaða í/við skála
Staðsetning lykla
Skrifstofa FFA
Símanúmer
462 2720