Barna- og fjölskylduferð: Heimsins stærsta fjársjóðsleit (Geocaching)

 

Mæting kl. 17 við Kjarnakot í Kjarnaskógi.
Fararstjórn: Ragnheiður Ragnarsdóttir og Sunna Björk Ragnarsdóttir
Fótgangandi fjarsjóðsleit þar sem farið er eftir hnitum til að finna fjársjóði sem aðrir hafa falið í skóginum. Gott að vera búin að sækja Geocaching appið. Þeir sem vilja geta tekið með sér ,,smáfjársjóði” (t.d. legókalla eða annað smádót) og skipt þeim út fyrir nýja í fjársjóðskistunum.
Þátttaka ókeypis.