Laxárdalur

Laxárdalur skorskor

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Áætlaður göngutími er 4–6 klst.
Ekið að sumarhúsinu á Rönd norðan Sandvatns við Mývatn. Gengið þaðan vestur niður í Laxárdal hjá Hólkotsgili. Skoðum Laxá og gömlu brúna hjá Brettingsstöðum. Síðan gengið gegnum Varastaðaskóg í Ljótsstaði. Fallega gróið svæði með áhugaverða sögu. Vegalengd um það bil 12 km., mest allt niður í móti. Þátttakendum er bent á að taka með sér flugnanet, þarna er oft mikill mývargur um þetta leyti árs.

Skráning