Náttúruskoðun í Krossanesborgum (barna- og fjölskylduferð)

Náttúruskoðun í Krossanesborgum

Mæting kl. 17 á neðra/stærra bílastæðið norðan við Óðinsnes.
Fararstjórn: Brynhildur Bjarnadóttir
Þátttaka ókeypis.
Fjölskyldurölt um Krossanesborgir þar sem sjónum verður beint að blómum og smádýrum. Þægilegur göngutúr fyrir allan aldur þar sem við stoppum reglulega, skoðum blómin og kíkjum á dýr eins og köngulær, flugur og ánamaðka. Gott að taka með stækkunargler. Ferðin tekur u.þ.b. 2 klst. Ekki þarf að skrá sig í þessa ferð.