Öskjuvegur - sumarleyfisferð

24.-28. júlí. Öskjuvegur - sumarleyfisferð skorskorskor 

Brottför kl. 17 í rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: 86.000/70.000. Innifalið: Fararstjórn, akstur, flutningur og gisting.
1.d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla, með viðkomu í Herðubreiðalindum.
2.d. Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju, ef til vill farið í sund í Víti. Hópurinn verður sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.
3.d. Ekið í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli, skála FFA. Vegalengd 14 km.
4.d. Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Vegalengd 20–22 km.
5.d. Lokadag göngunnar er fylgt gömlum jeppaslóða frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Vegalengd 15–16 km. Ekið til Akureyrar.

Skráning