Söguferðir/raðganga: Gengið í fótspor Theódórs Friðrikssonar bréfapósts. Fyrsta ferð. Úr Fjörðum

Ferðinni hefur verið aflýst!

Söguferð/raðganga: Gengið í fótspor Theódórs Friðrikssonar bréfapósts
Theódór Friðriksson (1876-1948) var fæddur í Flatey á Skjálfanda og ólst upp við kröpp kjör á svæðinu milli Skjálfanda og Eyjafjarðar. Theódór ritaði ævisögu sína: „Í verum“ er kom út 1941. Í bókinni eru mjög skýrar lýsingar á lifnaðarháttum alþýðunnar á þessum tíma. Í bók sinni segir Theódór frá vetrarferð sem hann fór í janúar 1900 frá Þönglabakka í Þorgeirsfirði að Skútustöðum við Mývatn. Erindið var að flytja bréf frá prestinum á Þönglabakka til prófastsins á Skútustöðum. Theódór var fimm daga á leiðinni austur í Mývatnssveit.

Ferðafélag Akureyrar efnir til sögugöngu í ágúst 2023 til minningar um þessa póstferð Theódórs Friðrikssonar. Við ætlum að ganga megin hluta leiðarinnar í þremur áföngum:

Fyrsta ferð:
Sunnudagur 13. ágúst
Brottför kl. 8 með rútu frá FFA, Standgötu 23.
Ekið norður í Hvalvatnsfjörð að bílastæði við Fjarðará. Þaðan verður gengið framhjá Gili í Hvalvatnsfirði suður yfir Leirdalsheiði að Grýtubakka í Höfðahverfi. Gengið er eftir bílslóð alla leiðina.
Vegalengd 23 km. Gönguhækkun um 300 m.
Fararstjórn: Ingvar Teitsson
Verð: 12.000/13.500 kr. Innifalið: Fararstjórn og rúta.

Áætlaður tími ferða er aðeins viðmið og fer eftir hópnum og aðstæðum hverju sinni.

Búnaðarlisti