Þeistareykjabunga: Gönguskíðaferð

Þeistareykjabunga. Gönguskíðaferð skidiskidiskidi  

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Sigurgeir Sigurðsson.
Ekið að svæðinu við Þeistareykjaskálann þar sem gangan hefst. Þeistareykjabunga er ein stærsta dyngja landsins og eru upptök hennar í Stóravíti. Gengið verður upp í Bóndhólsskarð og að Litlavíti sem er mjög sérstakt og áfram að Stóravíti. Síðan er gengið á hæsta punkt Þeistareykjabungu, þaðan sem víðáttumikil hraun hafa runnið og víðsýnt er um svæðið. Vegalengd um 15 km. Gönguhækkun 200 m.
Verð: 2.000/3.500. Innifalið: Fararstjórn.

Þeim sem hentar betur að mæta beint á upphafsstað göngunnar (við Þeistareykjaskálann) er bent á að hafa samband við skrifstofu FFA varðandi greiðslu. Skrifstofan er opin virka daga kl. 11:00-13:00. Netfang: ffa@ffa.is / sími: 462 2720

Skráning