Ferðir - ársrit FFA 2022

Í nýútkomnum Ferðum, ársriti FFA, má lesa um gönguferðir í Borgarfirði eystra, ferð um Gönguskarð í Kinnarfjöllum, heillandi gönguleiðir á Tenerife og byggingu þjónustuhúss í Dreka. Að venju er þar einnig að finna skýrslur um starfsemi félagsins á liðnu ári sem og ferðaáætlun yfirstandandi árs. 

Ritið er innifalið í árgjaldi til FFA en kostar í áskrift eða í lausasölu 3700 kr.