Fjallahjólahópur FFA 2021

Hér er eitthvað fyrir þig!

Fjallahjólaverkefnið verður byggt upp sem æfingar, styttri og lengri ferðir í bland við kennslu. Þátttakendur þurfa ekki að hafa mikla reynslu af fjallahjólreiðum en miðað er við að fólk kunni að hjóla og hafi áhuga á hjólreiðum utan alfaraleiða og eigi eða hafi aðgang að fjallahjóli og lágmarks öryggisbúnaði svo sem hjálmi og hönskum. Gert er ráð fyrir að fólk sé á fjallahjóli sem er í góðu lagi og með dempurum a.m.k. að framan. Auk ferða verður farið yfir það sem hafa þarf í huga við ástand hjóla þegar farið er í ferðir sem og þegar komið er heim.

Markmið verkefnisins er að þátttakendur læri inn á ferðamennsku á hjóli og fái reynslu af styttri og lengri dagsferðum á fjallahjóli. Í hópnum er miðað við að allir fái að njóta sín, vera saman, læra og hafa gaman. Haldið verður vel utan um hópinn meðal annars með öruggri fararstjórn og leiðsögn, fésbókarsíðu og góðri upplýsingagjöf.

Farið verður í níu skipulagðar hjólaferðir undir leiðsögn fararstjóra. Verkefnið hefst 20. maí með kennslu, síðan taka við ferðir og stendur verkefnið fram í lok ágúst (engar ferðir verða í júlí). Ferðirnar verða á fimmtudögum kl. 18 og sunnudögum kl. 9 og taka þær á bilinu 2-7 tíma. Þátttakendur koma á eigin bílum og þurfa einnig að geta ferjað eigið hjól. Innifalið í verði er flutningur á hjólum á þar til gerðri kerru í tvö skipti.

Þátttakendur ferðast á eigin ábyrgð. FFA tryggir hvorki farþega sína né farangur þeirra og hvetur fólk til að kynna sér eigin heimilistryggingar eða kaupa ferða- og slysatryggingu.

Verkefnið hefst 20. maí, hópurinn hittist síðan samkvæmt auglýstu plani, sjá hér

Lágmarksfjöldi er 12 þátttakendur og hámarksfjöldi 18.

Stutt myndbandskynning

Umsjón með verkefninu og fararstjórar: Guðrún E. Jakobsdóttir og Unnur Ósk Unnsteinsdóttir

Verð: 33.500 kr. fyrir félaga í FFA. Makar félagsmanna greiða sömu upphæð. Fyrir aðra bætist félagsgjald í FFA við sem er 8.700 kr. Þá þarf að skrá sig í félagið hér. Þátttökugjald verður innheimt þegar skráningu lýkur, krafa verður stofnuð í netbanka.

Skráningu lýkur 17. maí og verkefnið hefst 20. maí. Muna að taka fram hvaða hópur (Fjallahjólahópur). Hægt er að beina fyrirspurnum á netfangið ffa@ffa.is svo og hringja í síma 462 2720 milli kl. 14 og 17. Fararstjórar svara einnig fyrirspurnum.

Skráning