Hálshnjúkur við Vaglaskóg. Fjall mánaðarins.

Hálshnjúkur við Vaglaskóg. 627 m. skorskorFjall (fjall mánaðarins)
1. nóvember. Brottför kl. 9 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23.
Fararstjóri:  Grétar Grímsson
Verð: kr. 2.000/1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Ekið er í Vaglaskóg og að Efri-Vöglum þar sem gangan hefst. Gengið er upp hlíðina eftir stikaðri leið og á Hálshnjúkinn þar sem frábært útsýni er yfir Fnjóskadalinn og Ljósavatnsskarðið. Farið er sömu leið til baka. Göngubúnaður miðist við færi og aðstæður.

Lengd u.þ.b. 2 km frá Efri-Vöglum  svolítið brött leið, hækkun er u.þ.b. 420 m, gangan gæti tekið u.þ.b. 3 klst.