Hreppsendasúlur

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA Strandgötu 23. 
Fararstjóri: Gunnar Halldórsson.
Verð: 2.000 / 1.500. Innifalið: Fararstjórn.
Haldið er á fjallið skammt vestan við neyðarskýlið á Lágheiði, upp á súlurnar og til baka sömu leið. Þegar á toppinn er komið blasir stórkostlegt útsýni við til allra átta. Þetta er frekar létt ganga við flestra hæfi.