Kaldbakur, 1173 m. Skíða- eða gönguferð

Kaldbakur er ein af perlum Eyjafjarðar með útsýni allt austur á Langanes og inn á hálendi Íslands. Hann er talinn vera ein af orkustöðvum Íslands og ferð upp á hann er ógleymanleg lífsreynsla. Þar er stór landmælingavarða hlaðin af dönsku landmælingamönnunum árið 1914.
Fararstjóri: Frímann Guðmundsson/Grétar Grímsson.
Verð: kr. 2.000 / kr. 1.500
Innifalið: Fararstjórn.
Brottför frá FFA kl. 8.00