Næsta barna- og fjölskylduferð 19. ágúst: Berjaferð

Berjaferð

Mæting kl. 17 á bílastæðið við Hamra.
Fararstjórn: Fjóla Kristín Helgadóttir
Þátttaka ókeypis.
Þegar skuggarnir lengjast er fátt skemmtilegra en að fara í berjamó.  Farið verður í berjaferð í brekkurnar ofan við Hamra. Börnin taka með sér ílát eða tína bara upp í sig. Ferðin tekur u.þ.b. 2 klst. Ekki þarf að skrá sig í þessa ferð. Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og eins metra fjarlægð.