Næsta ferð 11. júní: Elliði í Hjaltadal í Skagafirði

Elliði í Hjaltadal í Skagafirði

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Una Þórey Sigurðardóttir
Ekið aðeins fram í Víðinesdal eftir nýjum bílfærum slóða og þaðan gengið eftir smalaslóða upp á Almenningsháls. Þaðan er gengið út Elliða og niður að afréttarhliði þar sem bíll hefur verið skilinn eftir. Mikið útsýni miðað við hæð, kannski ekki fyrir mjög lofthrædda en það er hægt að ganga vestan í fjallinu þar sem það er mjóst. Vegalengd um 15 km. Mesta hæð 894 m.
Verð: 3.000/4.500. Innifalið: Fararstjórn.

Þeim sem hentar betur að mæta beint á upphafsstað göngunnar (Víðinesdal) er bent á að hafa samband við skrifstofu FFA varðandi greiðslu. Skrifstofan er opin virka daga kl. 14:00-17:00. Netfang: ffa@ffa.is / sími: 462 2720