Næsta ferð 13. mars: Kristnes-Sigurðargil -gönguskíðaferð

Kristnes - Sigurðargil. Gönguskíðaferð skidiskidi

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Ingvar Teitsson
Verð: 3.500/2.000. Innifalið: Fararstjórn.
Gengið er upp norðan við skógræktargirðinguna í Kristnesi og stefnt upp að Stóruborg. Greið leið norður á Stórhæð þar sem útsýni er gott. Þaðan hallar svo niður að Sigurðargili þar sem bílarnir bíða.Vegalengd um 9 km og hækkun um 440 m. Selflytja þarf bíla milli Kristness og Sigurðargils.

Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og huga að persónulegum sóttvörnum. Munið að skrá ykkur hér