Næsta ferð 15. maí: Fuglaskoðunarferð í Mývatnssveit

Fuglaskoðunarferð í Mývatnssveit 

Brottför kl. 8 í rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jón Magnússon og Sverrir Thorstensen
Verð: 11.000/9.000. Innifalið: Fararstjórn og rúta. 
Árleg fuglaskoðunarferð FFA undir leiðsögn kunnáttumanna og að þessu sinni liggur leið okkar í Mývatnssveit og víðar. Fararstjórar velja þá staði sem vænlegastir eru til fuglaskoðunar á þessum tíma. Þátttakendur í ferðum FFA eru minntir á að virða gildandi sóttvarnareglur og huga að persónulegum sóttvörnum. Munið að skrá ykkur hér.