Næsta ferð 16. júlí: Kerling, sjö tinda ferð 1538 m.

Kerling -sjö tinda ferð 1538 m.

Brottför kl. 8 á einkabílum og með rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Einar Bjarki Sigurjónsson og Þuríður Helga Kristjánsdóttir
Ekið að Finnastöðum og gengið þaðan á Kerlingu hæsta fjall í byggð á Íslandi og síðan norður eftir tindunum; Hverfanda (1320 m), Þríklökkum (1360 m), Bónda (1350 m), Litla Krumma, Stóra Krumma, Syðri-Súlu (1213 m) og Ytri-Súlu (1143 m) og niður í Glerárdal. Vegalengd um 20 km. Gönguhækkun 1440 m. Nauðsynlegt er að hafa brodda meðferðis og klæða sig eftir veðri.
ATH takmarkaður fjöldi.
Verð: 5.000/7.000. Innifalið: Fararstjórn og rúta.

Skráning