Næsta ferð 17. ágúst: Siglufjarðarskarð. Fjallahjólaferð á rafhjóli

Siglufjarðarskarð. Fjallahjólaferð á rafhjóli

Brottför kl. 8 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Jón M. Ragnarsson og Stefán Sigurðsson

Ekið til Siglufjarðar. Lagt af stað þaðan, hjólað inn Skarðsdal og upp gamla veginn upp í Siglufjarðarskarð. Þaðan er víðsýnt í góðu veðri allt vestur á Strandir. Síðan er hjólað niður í Fljótin og eftir þjóðveginum gegnum Strákagöng og til Siglufjarðar. Ath. þrjú hjóla að erfiðleikastigi.

Vegalengd: 33 km. Hækkun samtals um 1000 m.

Meira um ferðina hér og skráning