Öskjuvegur - sumarleyfisferð 24.-28. júlí

Við minnum á sumarleyfisferð FFA um Öskjuveginn 24.-28. júlí  

Brottför kl. 17 í rútu frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjóri: Ingvar Teitsson.
Verð: 86.000/70.000. Innifalið: Fararstjórn, akstur, flutningur og gisting.
1.d. Ekið í Dreka, skála FFA austan Dyngjufjalla, með viðkomu í Herðubreiðalindum.
2.d. Gengið eftir stikaðri leið frá Drekagili, yfir Dyngjufjöll að Öskju, ef til vill farið í sund í Víti. Hópurinn verður sóttur á bílastæðið við Öskjuop og keyrður til baka að Dreka.
3.d. Ekið í Öskjuop. Gengið eftir stikaðri leið þaðan, yfir Dyngjufjöll um Jónsskarð og niður í Dyngjufjalladal. Gist í Dyngjufelli, skála FFA. Vegalengd 14 km.
4.d. Frá Dyngjufelli er gengið norður Dyngjufjalladal í Suðurárbotna. Gist í Botna, skála FFA. Vegalengd 20–22 km.
5.d. Lokadag göngunnar er fylgt gömlum jeppaslóða frá Botna niður um Suðurárbotna og meðfram Suðurá að Svartárkoti. Vegalengd 15–16 km. Ekið til Akureyrar.
Munið að skrá ykkur hér.