Skálavarsla í júlí 2025

SKÁLAVERÐIR 

Vegna forfalla: Ferðafélag Akureyrar leitar að skálaverði/-vörðum til starfa í skálum félagsins í Drekagili sumarið 2025.

Tímabil sem um ræðir eru nokkrar vikur í júlí.

Starfið felst m.a. í móttöku gesta, þrifum, veitingasölu og samskiptum við ferðaþjónustuaðila og fleiri. Mikilvægt er að viðkomandi búi yfir ríkri þjónustulund, hafi góða tungu­málakunnáttu, sé lausnamiðaður, handlaginn og greiðvikinn.

Nánari upplýsingar um starfið veita þau Fjóla Kristín Helgadóttir í síma 821-1296 eða í netfangi fjola.k.helgadottir@gmail.com, og Einar Hjartarson í síma 854-0247 eða í netfangi gjaldkeri@ffa.is.