Þaulinn 2022 - gönguleikur

Þaulinn, hinn sívinsæli gönguleikur Ferðafélags Akureyrar, er kominn á heimasíðu FFA. Þaulinn er skemmtileg afþreying fyrir alla fjölskylduna og tækifæri til hollrar útiveru í Eyjafirði.  Fjölbreyttar útivistarvörur í vinninga fyrir þá sem verða heppnir þegar dregið verður úr innsendum svarblöðum.

Að þessu sinni verður ekki bæklingur fyrir gönguleikinn heldur er hann á heimasíðu FFA, þar er hægt að nálgast kort af leiðunum og lýsingar í Þaulanum 2022 og prenta út svarblöð fyrir þátttakendur. Svarblöð er einnig hægt að nálgast á skrifstofu FFA,
Strandgötu 23, Akureyri.

Kynnið ykkur Þaulann 2022 hér.