Barna- og fjölskylduferð: Ferð að Skeiðsvatni fellur niður

Barna- og fjölskylduferð: Ferð að Skeiðsvatni 

ATH: Barna- og fjölskylduferðin að Skeiðsvatni verður felld niður þann 28.06.2025 vegna dræmrar þátttöku.

Brottför kl. 10 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Safnast saman í bíla ef vill.
Fararstjórn: Gyða Njálsdóttir og Sunna Björk Ragnarsdóttir

Ekið á einkabílum að Skeiði í Svarfaðardal. Gengið er fram að Skeiðsvatni eftir slóða. Gengið um í nágrenni vatnsins og náttúra dalsins skoðuð. Gaman getur verið að sulla í læk og vatni, þess vegna ástæða til að taka með auka sokka og handklæði.

Vegalengd um 8 km. Gönguhækkun: 190 m.

Gera má ráð fyrir að ferðin taki 5 - 6 klst.

Þátttaka ókeypis.