Barna- og fjölskylduferð: Kvöldferð á Haus í Staðarbyggðarfjalli

Barna- og fjölskylduferð: Kvöldferð á Haus í Staðarbyggðarfjalli

Brottför kl. 19 á einkabílum frá FFA, Strandgötu 23.
Fararstjórn: Hulda Jónsdóttir
Ekið fram Eyjafjörð að austanverðu að Öngulsstöðum. Þaðan er ekið eftir malarvegi að bílastæði við sumarbústaðinn Sel. Gengið er eftir stikaðri leið að vörðunni á Haus sem er fyrsti áfanginn þegar gengið er á Staðarbyggðarfjall. Þaðan er frábært útsýni og gaman að njóta með börnum á fallegu sumarkvöldi.
Vegalengd 3,3 km. Gönguhækkun 270 m.
Þátttaka ókeypis.

SKRÁNING